Um okkur
Enn meira úrval og þjónusta fyrir viðskiptavini fimleikavorur.is
Fimleikavörur.is er umboðsaðili Milano-Pro-Sport, Zone, Roche Valley og 10.0 á Íslandi.
Við bjóðum alla velkomna í verslun okkar að Hallveigarstíg 10a, 101 Reykjavík. Þar bjóðum við frábært vöruúrval af fimleikabolum, skóm, ólum, hettupeysum, buxum o.fl. Við leggjum ríka áherslu á persónulega og góða þjónustu og aðstoðum viðskiptavini okkar við val á réttu vörunum.
Verslunin er opin alla virka daga 11:00-14:00 nema miðvikudaga þá er opið 16.30-20.30.
Einnig ætlum við að hafa opið nokkra laugardaga í vetur- það verður auglýst síðar.
Netverslunin okkar www.fimleikavorur.is er hins vegar alltaf opin !
Við kappkostum við að bjóða viðskiptavinum okkar fallegar og vandaðar vörur á góðu verði.
Við bjóðum eins og fyrr fimleikafélögum og hópum upp á góðan magnafslátt sem fer eftir hve stór pöntunin er.
Við kaup á vörum í vefversluninni er boðið uppá að greiða með millifærslu, kreditkorti eða með póstkröfu. Sendingar-og póstkröfugjald er ekki innifalið í verðum og fylgjum við verðskrá póstsins.
Verð geta breyst án fyrirvara.
Með von um ánægjuleg viðskipti í framtíðinni.
Dagmar og Ásdís
Fimleikavorur.is